Verðtryggð lán í Excel

Ég skrifaði skýrslu um verðtryggð lán fyrir rúmum 2 árum síðan að beiðni VR fyrir milligöngu Stofnunar um fjármálalæsi.  Hana má nálgast hérna - http://www.vr.is/Uploads/VR/utgefid_efni_vr/Verdtrygging%20fjarskuldbindinga.pdf

Um svipað leyti skrifaði ég pistla þar sem að fram kom að fólk gæti haft samband við mig ef það hefði áhuga á Excel skjalinu sem ég notaði við gerð skýrslunnar.  Það kom mér ekki á óvart að margir hefðu samband á þeim tímapunkti en ég bjóst hins vegar ekki við að fá pósta reglulega fram til dagsins í dag þar sem að fólk hefur grafið upp gömul og (hér um bil) gleymd skrif mín og beðið um eintak af þessu Excel skjali. Áhugi á slíku skjali er því augljós.

Því hef ég hlaðið skjalið niður í DropBox í opnum aðgangi.  Hægt er að hlaða það niður á þessari slóð - https://www.dropbox.com/s/yie4iwvvn1wsq9f/verdtryggd%20lan%20mar%20mixa%20benedikt%20helgason.xlsx - og byrja að bera saman verðtryggð lán miðað við ákveðnar forsendur og jafnvel bera saman mismuninn við óverðtryggð lán. 

MWM


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband