Lágmark 50% - Algjört lágmark

Vorið 2009 skrifaði ég grein varðandi fjárfestingastefnu lífeyrissjóða. Fram kom sú skoðun mín að meginþungi fjárfestinga lífeyrissjóða ætti að vera á svæðum sem eru óháðari árferði efnahags Íslendinga, með öðrum orðum á alþjóðlegum mörkuðum. Benti ég á að í 36. gr. í VII kafla laga um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða (1997 nr. 129) væru ákvæði með það fyrir augum að lágmarka áhættu. Þar kemur meðal annars fram að lífeyrissjóðir skuli takmarka áhættu í erlendum gjaldmiðlum í heild við 50% af hreinni eign hvers sjóðs.

Taldi ég að breyta ætti þessari löggjöf með þeim hætti að takmörk séu á innlendri fjárfestingu, ekki erlendri. Ekki væri óeðlilegt að af heildarfjárfestingum, að húsnæðislánum undanskildum, væru erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða á bilinu 70-80% af fjárfestingarsafni þeirra. Hef ég í kennslu í HR síðustu sjö ár bent á kosti þess að fjárfesta á erlendri grundu, og sýnt meðal annars að hefðu lífeyrissjóðir haft helming eigna sinna erlendis þá hefði eignasafn þeirra jafnvel hækkað í íslenskum krónum talið sökum veikingu hennar.

Þessi skoðun hafði þó lítinn mátt þegar að þessi tillaga mín birtist fyrst, þegar að gjaldeyrishöft voru ríkjandi. Slíkt hefur hins vegar breyst mikið síðustu ár. Nú er svo komið að yfir 40% af fjárfestingum ákveðinna lífeyrissjóða er á alþjóðlegum vettvangi. Löggjafarvaldið ætti að vinna í því að gólf, ekki þak, verði sett á fjárfestingum lífeyrissjóða á erlendum vettvangi. Slíkt gólf ætti að mínu mati að vera að lágmarki 50% og er ekki óeðlilegt að lífeyrissjóðir hefðu svigrúm til ársins 2025 til að uppfylla slíkt skilyrði.

MWM


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig er hægt að áfellast þá sem rannsaka sjálfan sig?

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 20.11.2021 kl. 00:32

2 identicon

Allir fjölmiðlar landsins ættu að skunda til Steingríms Sigfússonar og heimta svör.

En öll blaðamannastétt landsins hefur verið keypt!

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 20.11.2021 kl. 00:36

3 identicon

Ef bæta á fjárfestingartækifæri og ávöxtun lífeyrissjóðanna með því að flytja fjármuni sjóðanna að stórum hluta úr landi, sem er jákvætt, ætti samhliða að kaupmáttartryggja lífeyrir. Nú er staðan sú að lífeyrir frá lífeyrissjóði er bara verðtryggður en kaupmáttur hækkar að meðaltali um 1,5-2% á ári umfram verðbólgu sem þýðir að kjör eftirlaunaþega skerðast um 1,5-2% á ári að meðaltali sem gerir rúm 30-40% á líftíma eftirlaunaþega á lífeyri frá lífeyrissjóði.

Eggert (IP-tala skráð) 21.11.2021 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Hver er summan af níu og tólf?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband