Framlenging á Leiđréttingu - mikilvćgt atriđi
2.7.2017 | 07:19
Fyrir nokkrum árum síđan gafst landsmönnum kostur á ađ nota séreignarsparnađ sinn til ađ greiđa niđur húsnćđislán sín ađ ákveđnu marki. Ég taldi ţetta vera góđa hugmynd og hef hvatt fólk til ađ nýta sér ţetta í langflestum tilvikum.
Upphaflega átti ţessi ađgerđ ađ vera í bođi í 3 ár. Nú hefur hún hins vegar veriđ framlengd um 2 ár. Til ţess ađ nýta sér ţennan kost dugar ţó ekki ađ gera ekki neitt. Ţessi skilabođ bárust í vikunni frá umsjónarmönnum verkefnsins (ég skáletra textann).
Góđan dag
Međ lögum nr. 111/2016 var úrrćđiđ um ráđstöfun séreignarsparnađar, sem ţú hefur nýtt ţér, framlengt um tvö ár eđa til júníloka 2019.
Nú hefur ríkisskattstjóri sett upp á síđunni www.leidretting.is fyrirspurn ţar sem óskađ er eftir afstöđu ţinni hvort ţú hyggist nýta ţér úrrćđiđ áfram eđa hvort ţú vilt hćtta ráđstöfun nú í júnílok 2017.
Nú hefur ríkisskattstjóri sett upp á síđunni www.leidretting.is fyrirspurn ţar sem óskađ er eftir afstöđu ţinni hvort ţú hyggist nýta ţér úrrćđiđ áfram eđa hvort ţú vilt hćtta ráđstöfun nú í júnílok 2017.
Ţeir sem nýtt hafa sér úrrćđiđ eru hvattir til ađ fara inn á www.leidretting.is og taka afstöđu til áframhaldandi ráđstöfunar en frestur til ađ taka afstöđu hefur veriđ framlengdur til 31. júlí 2017.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 442-1900 og í gegnum netfangiđ adstod@leidretting.is
Eitt atriđi sem gćti fariđ framhjá sumum er ađ ađilar í sambúđ ţurfa ađ samţykkja ţessa framlengingu međ sitt hvorri kennitölunni. Ef annar ađilinn samţykkir ţetta og ekki hinn, ţá er litiđ svo á ađ ađeins annar ađilinn vilji framlengja ţennan kost. Ţví ţurfa ađilar í sambúđ sem vilja nýta sér báđir ţetta úrrćđi ađ skrá sig í sitt hvoru lagi og samţykkja áframhaldandi sparnađ.
Ég taldi ţetta úrrćđi vera góđa hugmynd á sínum tíma og tel svo enn vera. Aftur á móti tel ég ađ breyta ţurfi ţessu áriđ 2019, ţegar ađ núverandi úrrćđi fellur úr gildi, en ég skrifa nánar um ţađ síđar.
MWM
Flokkur: Viđskipti og fjármál | Facebook
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ţú ert innskráđ(ur) sem .
Innskráning