Netbankar og ađrir bankar

Nýr (innan gćsalappa) banki sem nefnist Auđur var settur á laggirnar í vikunni. Auđur, sem er í eigu Kviku banka, svipar mjög til netbanka Sparisjóđs Hafnarfjarđar, S24, sem starfađi frá árinu 1999 fram ađ falli sparisjóđsins, sem hafđi reyndar á ţeim tímapunkti sameinast Sparisjóđi vélstjóra undir hinu andlausa heiti Byr sparisjóđur. S24 bauđ ávallt uppá bestu vaxtakjör sem fáanleg voru á markađi, bćđi hvađ varđar innláns- og útlánsvexti auk ţess sem ađ bankinn bauđ einnig Íslendingum fyrstur val á ţví ađ taka óverđtryggđ húsnćđislán (sem engin(n) hafđi áhuga á, ótrúlegt en satt). Yfirbygging S24 var lítil og í mínum huga markađi starfsfólk ţessa netbanka framtíđ íslenskrar fjármálaţjónustu á netinu.

Íslandsbanki sýndi lengi vel áhuga á ţví ađ kaupa S24 vegna sérstöđu netbankans, en ţegar ađ Byr sparisjóđur féll í kjöltu ţess í framhaldi af hruninu ákvađ Íslandsbanki einhverra hluta vegna ađ innlima S24 í netbanka sinn og stroka út öll sérkenni bankans, eins og ţau frábćru vaxtakjör sem fólk gat gengiđ ađ vísu á ţeim bćnum.

Nú, heilum tíu árum síđar, kemur Kvika banki međ netbanka sem er einfaldur í uppbyggingu og veitir fólki í fyrsta sinn síđan S24 var og hét almennileg vaxtakjör á óbundnum innlánsreikningum. Ţetta leiđir hugann á ţví hversu slappir íslenskir bankar hafa veriđ gagnvart viđskiptavinum sínum, sem eru einnig eigendur tveggja ţeirra, varđandi innlánskjör.

Ţetta undirstrikar einnig ýmis spurningarmerki varđandi stefnu ţeirra. Ólöf Skaptadóttir skrifađi á miđvikudaginn (13.3.2109) pistil í Fréttablađinu í tilefni ţess ađ Auđur var ađ hefja starfsemi sína. Hún bendir á ađ uppbygging Auđar sé einföld sem veiti Kviku banka tćkifćri til ţess ađ veita innstćđueigendum almennileg vaxtakjör. Ólöf veltir ţví einnig fyrir sér hver stefna Landsbankans sé. Á međan ađ Kvika beinir sjónum sínum á ađ einfalda ţeim hluta af rekstri sínum sem snýr ađ einfaldri bankastarfsemi ţá ćtlar Lansbankinn ađ byggja stórar höfuđstöđvar á dýrasta bletti Reykjavíkurborgar. Ólöf líkir ţetta viđ ađ reisa 9 milljarđa króna DVD-verksmiđju áriđ 2019; ég verđ ađ taka undir ţau orđ. Á sama tíma ákvađ Íslandsbanki, hinn bankinn í eigu ríkisins, ađ fćra höfuđstöđvar sínar enn fjćr miđbć Reykjavíkur (ţćr gömlu voru vel ađ merkja orđnar ónýtar).

Vćri ég í bankaráđi Landsbankans ţá myndi ég leggja til ađ bankinn myndi, svo lengi sem hann vćri í eigu ríkisins, einfalda starfsemi sína. Hann myndi sinna einfaldri bankaţjónustu fyrir almenning og láta öđrum eftir ađ veita flóknari bankaţjónustu. Í ţví gćti falist ađ selja ţann hluta bankans sem sinnir flóknari bankaţjónustu (ég hef veriđ í viđskiptum viđ bankann og veit ađ starfsemi ţess sem snýr ađ verđbréfum er verđmćt ţví ţar liggja verđmćti í reynslu og ţekkingu starfsmanna). Í ţví fćlist ađ hćtta ađ bruđla međ almannafé og reisa óţarflega dýrar höfuđstöđvar og einblína frekar á ţjónustu í anda ţess sem S24 var og Auđur er nú.

MWM 


Bloggfćrslur 15. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband