Már Wolfgang Mixa - Stjórnarframbođ

Ég hef ákveđiđ ađ bjóđa mig fram til stjórnarsetu í nokkrum skráđum félögum á Íslandi. Markmiđ mín í setu stjórna verđur ađ leitast viđ ađ skapa virđi í rekstri fyrirtćkja međ skynsömum hćtti.

Sjálfur hef ég kennt virđismat fyrirtćkja í mörg ár í Háskólanum í Reykjavík, ţar sem lögđ er áhersla á skilning varđandi virđisaukningu fyrirtćkja međ tilliti til vaxtar og hagrćđingar og ţeirri áhćttu sem slíku fylgir. Auk ţess vann ég áđur viđ margvísleg störf í fjármálageiranum og tel reyndar nokkuđ víst ađ enginn einstaklingur hafi jafn víđtćka reynslu innan fjármálageirans og ég. Í ţví fólst međal annars vinna í tengslum viđ uppsetningu verđbréfasjóđa, lífeyrissparnađar og stofnun fjármálafyrirtćkja, sem ţurfti ađ sjálfssögđu ađ vinna í samstarfi međ stjórnum sem ţurftu ađ fylgja ströngum lögum og reglum varđandi fjármálamarkađi.

Í tengslum viđ frambođ mín verđ ég međ ţrjár sérstakar áherslur. Ţćr eru:

1.       Arđgreiđslustefna, sem felur međal annars í sér ađ endurkaup eigin bréfa verđi afnumin.

2.       Vernd minni hluthafa.

3.       Fyrirtćki eigi nćgan varasjóđ ef á móti blási.

Fyrstu tvćr áherslurnar eiga ađ stuđla ađ ţví ađ virkja almenning í ţví ađ fjárfesta aftur í hlutabréfum, en íslenskur almenningur gerir slíkt almennt ekki eftir slćma og afar eftirminnilega reynslu áriđ 2008. Sú ţriđja snýr ađ stöđugleika í rekstri ţeirra. Ég skýri hvern liđ um sig betur nćstu daga.

Fari svo ađ ég verđi kosinn í einhverja af ţessum stjórnum mun ég skipta launum mínum eftir skatta vegna stjórnarsetu í tvo jafna hluta. Annar helmingurinn fer í kaup bréfa í ţví fyrirtćki sem ég er kosinn í stjórn. Sjálfur tel ég ađ stjórnarmenn eigi ađ fjárfesta ákveđinn hluta af sparnađi sínum í ţau fyrirtćki sem ţeir bera ábyrgđ á. Hinn helmingurinn verđur variđ til ađ styrkja fimm góđgerđarsamtök. Ţau eru Ljósiđ, Félag heyrnalausra, Rauđi Kross Íslands, Ţroskahjálp og Kvennaathvarfiđ.

Már Wolfgang Mixa

 

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Hver er summan af fjórum og ellefu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband