Michael Lewis - fjármálabækur í sumarfríinu

Árlega þegar við hjónin erum að spá i hvaða bækur eigi að taka með í sumarfríið lendum við í samningaferli sem felst í því að ég vil bara taka með mér bækur varðandi fjármál en hún bendir (réttilega) á að ég ætti að lesa eitthvað annað en fjármál, sérstaklega þegar ég eigi að vera í alvöru hvíld frá heimi fjármála. Oftast endar þetta með því að ég tek eina bók varðandi fjármál og aðra um allt annað en það tiltekna efni. 

Fyrir þá sem vilja frekar blanda saman áhugavert efni og fjármál þá eru bækur eftir Michael Lewis tilvaldar. Hann skrifar með þeim hætti að maður gleymir því oft að verið sé að fjalla um fjármál. Í hugum sumra er það reyndar ókostur, enda ýkir hann stundum i skrifum sínum til að skapa skemmtilegri lesningu. 

Slíkt kemur fram í bókinni Boomerang. Helsti ókostur hennar er að maður fær það oft á tilfinningunni að verið sé að einblína of mikið a staðalmyndir þjóða. Bókin tekur fyrir fimm þjóðir og hegðun þeirra í tengslum við fjármál. Er þá sjónum aðallega beint að því hvaða hegðun varð til þess að þjóðir töpuðu mismiklu magni af peningum í fjármálakreppunni nýlega og með hvaða hætti (sem var afar mismunandi). Það þarf kannski ekki að koma mjög á óvart að fyrsti kaflinn er um Island. 

Þessi bók er stórskemmtileg lesning sem sýnir hvernig ákveðinn einkenni þjóða (sem erfitt er að skilgreina en réttlætir að ákveðnu leyti óhófleg not Lewis á staðalmyndum) kom fram í darraðardansi fjarmala i upphafi þessa áratugar.

Önnur afar áhugaverð bók eftir Lewis er The Big Short. Hún fjallar um nokkra einstaklinga sem högnuðust gífurlega á því að taka skortstöður á húsnæðismarkaðinum í Bandaríkjunum árin 2005 til 2008. Það er ótrúlegt að lesa í einni lotu hversu augljós bóla hafði myndast og hversu fáir sáu hana. Hún lýsir því einnig vel hversu erfitt það er fyrir menn í fjárfestingum að synda á móti straumnum. Eitt sláandi dæmi er maður sem hafði skapað eigendum sjóðs sem hann stýrði gífurlegan hagnað en þrátt fyrir það var hann bitur eftir reynsluna. Honum fannst þetta hreinlega vart hafa verið þess virði eftir að hafa þurft að sannfæra fjárfesta sína í mörg ár að stefna hans væri rétt og þegar að slíkt kom í ljós voru þakkirnar takmarkaðar. 

Að lokum er vert að benda á sígilda bók Lewis, Liar's Poker, sem fjallar um reynslu hans í verðbréfaheiminum á áttunda áratugnum. Hann hefur sjálfur sagt í viðtölum síðar að hann telji að landslagið hafi einungis versnað síðan þá. Ég hef áður skrifað um þá bók og er slóð að þeim skrifum hér - http://www.slideshare.net/marmixa/20030227-liars-poker.

Sjálfur mæli ég eindregið með Boomerang sem lesningu í sumarfríinu í ár. Íslendingar geta flestir haft gaman af kaflanum um sitt eigið land og jafnvel ekki síður önnur lönd, sérstaklega ef verið sé að heimsækja þau. Konan mín gæfi mér í hið minnsta grænt ljós á hana.

MWM 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af þremur og sex?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband